Home Fréttir Í fréttum Center­hotels dæmt til að greiða 200 millj­ón­ir vegna framkvæmda

Center­hotels dæmt til að greiða 200 millj­ón­ir vegna framkvæmda

200
0
Center­hotel-keðjan Plaza við Aðalstræti. Mynd: Mbl.is

Hót­elkeðjan Center­hotels, sem rek­ur fjöl­mörg hót­el í miðbæ Reykja­vík­ur, var í síðustu viku dæmd til að greiða fast­eigna­fé­lag­inu Reit­um rúm­lega 200 millj­ón­ir vegna fram­kvæmda þegar hús­næði við Aðalstræti 6-8 var gert upp. Eitt hót­el keðjunn­ar, Center­hotel plaza, er þar staðsett.

<>

Hót­elkeðjan hafði um langt ára­bil leigt hús­næðið af Reit­um og áður af Landic Ice­land. Á þeim tíma hafði verið farið í ýms­ar fram­kvæmd­ir og var þá kveðið á um í samn­ingi að Reit­ir myndu greiða fyr­ir fram­kvæmd­ir, en Center­hotels myndu greiða þá upp­hæð til baka sam­hliða leigu­greiðslum. Færi keðjan úr hús­næðinu þyrfti að greiða það sem upp á vantaði.

Árið 2016 nýtti keðjan sér for­kaups­rétt og keypti hús­næðið fyr­ir 2,5 millj­arða. Þá stóð út af rúm­lega 200 millj­óna fram­kvæmda­kostnaður. Taldi Center­hotels að þar sem ekki væri til­greint sér­stak­lega hvað yrði um eft­ir­stöðvarn­ar ef keðjan myndi kaupa húsið þá bæri þeim ekki að greiða upp­hæðina.

Dóm­ur­inn kemst að þeirri niður­stöðu að það hafi verið skiln­ing­ur beggja aðila að fram­kvæmd­irn­ar væru hót­elkeðjunni til hags­bóta og að frum­kvæði henn­ar. Fellst dóm­ur­inn á túlk­un Reita og seg­ir að „önn­ur túlk­un á þessu ákvæði væri ber­sýni­lega ósann­gjörn og óhæfi­lega íþyngj­andi fyr­ir stefn­anda.“

Heimild: Mbl.is