Home Fréttir Í fréttum Átta þúsund fermetra Stapaskóli verður tilbúinn um mitt ár 2020

Átta þúsund fermetra Stapaskóli verður tilbúinn um mitt ár 2020

772
0
Stapaskóli

Ríkiskaup hafa, fyrir hönd Reykjanesbæjar, óskað eftir tilboðum í verkframkvæmdir vegna nýs grunnskóla við Dalsbraut 11-13 í Reykjanesbæ.

<>

Heildarstærð fyrsta áfanga grunnskólans er brúttó um 7.700 m². Skólinn er á tveimur hæðum auk tæknikjallara og tæknirýmis sem telst til þriðjuhæðar.  Tilboð í framkvæmdina verða opnuð í lok nóvembermánaðar og verkinu skal skilað þann 15. júní árið 2020.

Innkaupaferli Ríkiskaupa og Reykjanesbæjar, vegna  verkhönnunar og verkframkvæmdar við byggingu Stapaskóla í Dalshverfi í Reykjanesbæ var stöðvað í sumar eftir ákvörðun kærunefndar útboðsmála þar sem lægstbjóðandi í verkefnið, verktakafyrirtækið Munck, krafðist þess að kærunefnd útboðsmála stöðvaði „ferli samkeppnisviðræðna“ með kæru til nefndarinnar.

Reykjansbær samdi um greiðslu skaðabóta til fyrirtækisins skömmu síðar

Heimild: Sudurnes.net