Tvöföldun Reykjanesbrautar við Hafnarfjörð, breikkun Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss og Vestfjarðavegur um Gufudalssveit verða stærstu nýframkvæmdir næsta árs, samkvæmt samgönguáætlun sem kynnt var þingflokkum ríkisstjórnarinnar í dag. Þar er 160 milljörðum króna ráðstafað næstu fimm árin og hartnær 500 milljörðum næstu fimmtán ár. Frá þessu var greint í fréttum Stöðvar 2.
Samgönguáætlun er stærsti framkvæmdapakkinn sem Alþingi ráðstafar. Samgönguráðherrann, Sigurður Ingi Jóhannsson, lagði áætlunina fyrir ríkisstjórn í gær, í dag var hún kynnt þingflokkum stjórnarinnar og í næstu viku áformar hann að leggja hana fram á Alþingi og til opinberrar kynningar.
Samgönguáætlun veitir svör um það hvar verði malbikað, hvar verði brúað og hvar verði grafin göng, – og að þessu sinni ekki aðeins á næstu fimm árum heldur á næstu fimmtán árum. Hætt er við að margir verði fyrir vonbrigðum, miðað við það sem spurst hefur út um einstök verkefni.
Tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði, á kaflanum milli Kaldárselsvegar og Krísuvíkurvegar, fær þó grænt ljós. Hún er eitt stærsta nýja verkið en áformað er að ljúka því á næstu tveimur árum.
Breikkun Suðurlandsvegar, milli Hveragerðis og Selfoss, í tveir plús einn veg, fer í útboð á næstu vikum en verkið gæti tekið fjögur ár. Breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes gæti hafist undir lok næsta árs.
Utan suðvesturhornsins ber hæst endurnýjun Vestfjarðavegar um Gufudalssveit, en hún er þó háð því að niðurstaða fáist um Teigsskóg eða um aðra veglínu. Þá er stefnt að því að haldið verði áfram með Dettifossveg og hann kláraður.
Dýrafjarðargöng eru fjárfrekasta framkvæmdin um þessar mundir en næstu jarðgöng munu að öllum líkindum bíða fram á næsta fimm ára tímabil, sem hefst 2024.
Ýmis stór verk, sem kallað hefur verið eftir, þurfa að bíða í einhver ár. Þannig hefst smíði nýrrar brúar á Hornarfjarðarfljót vart fyrr en eftir þrjú ár og sama gildir um lagningu nýs vegar um Dynjandisheiði. Ný brú á Ölfusá við Selfoss bíður sömuleiðis.
Þá er hrópað víða á endurbætur sveitavega, eins og í Dalasýslu, um Vatnsnes og í Bárðardal, en óvíst er hve mikið malbik fæst í dreifbýlið á næstu árum.
Og svo er það spurningin hvenær klárað verður að tvöfalda Reykjanesbrautina; kaflann meðfram Straumsvík og að Hvassahrauni. Þeirri spurningu fæst væntanlega svarað í næstu viku, þegar ráðherrann kynnir samgönguáætlun.
Heimild: Visir.is