Home Fréttir Í fréttum 02.10.2018 Varnargarður í Jökulsá á Fjöllum við Skjálftavatn í Kelduhverfi

02.10.2018 Varnargarður í Jökulsá á Fjöllum við Skjálftavatn í Kelduhverfi

420
0
Mynd: Mbl.is

Vegagerðin fyrir hönd Landgræðslu ríkisins óskar eftir tilboðum í gerð varnargarðs í Jökulsá á Fjöllum við Skjálftavatn í Kelduhverfi.

<>

Varnargarðurinn er 430 m langur og er tilgangur hans að verja vesturbakka árinnar fyrir landbroti.

Helstu magntölur eru:

Grjót 4500 m3

Möl (síulag) 1500 m3

Fylling 6700 m3

Verkinu skal að fullu lokið 1. mars 2019.

Útboðsgögnin eru seld í móttöku Vegagerðarinnar, Borgartúni 7, 105 Reykjavík og Miðhúsavegi 1, 600 Akureyri frá og  með mánudeginum 17. september 2018.

Tilboði skal skila á frumriti tilboðsforms í lokuðu umslagi merktu heiti útboðs til Vegagerðarinnar Borgartúni 7, 105 Reykjavík, Vegagerðarinnar eða Miðhúsavegi 1, 600 Akureyri fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. október 2018   og kl. 14:15 sama dag verða tilboðin opnuð á sömu stöðum að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.