Home Fréttir Í fréttum Hafnartorg að taka á sig lokamynd

Hafnartorg að taka á sig lokamynd

431
0
Hafnartorg Mynd: Vísir/vilhelm

Það styttist í iðandi mannlíf á Hafnartorgi í miðborg Reykjavíkur en fyrstu verslanirnar opna þar innan nokkurra vikna, skrifstofur fyllast og fólk getur byrjað að flytja inn í fyrstu íbúðirnar um eða upp úr áramótum.

<>

Það eru aðeins rúm tvö ár síðan byggingarframkvæmdir hófust á Hafnartorgi og nú sér fyrir endann á þeim. Verslunarrými verður afhent á næstu vikum og mánuðum. Fyrstu íbúðirnar verða afhentar fyrir áramót og þær síðustu næsta vor þegar þessu heildarverkefni lýkur.

Þorvaldur Gissuararson forstjóri ÞG verktaka sem sér um uppbygginguna og sölu íbúða og skrifstofuhúsnæðis, segir verkið hafa gengið vel.

Þorvaldur, við erum að labba hér eftir götu sem heitir Steinbryggja. Húsin hér í kringum okkur, hvað er hér sitt hvoru megin við okkur?

„Þessi hús sem við sjáum hér til beggja handa, í þessum fimm turnum, eru íbúðir á efri hæðum en verslanir hér á jarðhæðunum. Reginn er eigandi að öllu verslunarhúsnæðinu. Þeir keyptu hér öll verslunarrými strax í upphafi verkefnisins,“ segir Þorvaldur.

Ein þekktasta verslunarkeðja heims, H&M eða Hennes og Mauritz, tilkynnti í dag að ný verslun keðjunnar verði opnuð á tveimur hæðum í húsi sem stendur við Lækjargötu um miðjan næsta mánuð. En hæðirnar eru samanlagt um fimm þúsund fermetrar. Hvert hús á Hafnartorgi hefur sitt sérkenni í útliti.

Hvert hús hefur sín sérstöku einkenni
„Hér er sérstakt form á utanhúsklæðningum og verið að nota ýmis konar efni. Steinklæðningar til dæmis. Þetta er íslenskt grágrýti. Það eru sérsmíðaðar álklæðningar við Lækjargötu, á stóru húsunum. Það er verið að nota mikið sjónsteypu, svört sjónsteypa hér og hvít slétt sjónsteypa í fremsta húsinu,“ útskýrir Þorvaldur þar sem hann gengur um svæðið með fréttamanni. Mikil breyting verður á miðborginni eftir að framkvæmdum við Hafnartorg lýkur og nýjar göngugötur verða til í hjarta borgarinnar sem í framtíðinni tengjast göngugötu allt að Hörpu.

Sjötíu íbúðir verða í hluta húsanna og skrifstofur á efri hæðum annarra. Nú þegar er búið að selja nokkrar íbúðir. Þær fara annars í almenna sölu von bráðar en þeim er skilað fullkláruðum með innréttingum og heimilistækjum.

Þorvaldur sýndi fréttamanni fullkláraða sýningaríbúð með tveimur rúmgóðum baðherbergjum, annað inn af hjónaherbergi og annað sem ætlað er gestum.

Þú getur nú varla búið meira í hjarta borgarinnar en einmitt hér á Hafnartorginu?

„Nei, ég held að þetta sameini nú flesta þá kosti sem hægt er að hugsa sér fyrir þá sem vilja vera í hjarta miðbæjarins,“ segir Þorvaldur. Íbúðirnar eru í dýrari kantinum enda afhentar með öllum innréttingum og heimilistækjum eins og áður sagði. Verðið ræðst nokkuð af staðsetningu og segir Þorsteinn fermetraverðið vera frá rúmum 700 þúsund krónum upp í rúma milljón.

Heimild: Visir.is