Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Borgarbyggð semur við Borgarverk ehf. um gatnagerð

Borgarbyggð semur við Borgarverk ehf. um gatnagerð

736
0
Mynd: Borgarbyggð

Í vikunni var undirritaður verksamningur milli Borgarverks ehf annars vegar, og Borgarbyggðar, Veitna ohf, Rarik ohf, Mílu ehf og Gagnaveitu Reykjavíkur ehf hins vegar, um gatnagerð og tilheyrandi lagnakerfi í nýrri götu, Rjúpuflöt á Hvanneyri.

<>

Hér er um  fyrsta samninginn að ræða sem gerður er um gatnagerð  hér í Borgarbyggð frá því fyrir hrun. Markar hann því nokkur tímamót.  Myndin sýnir þá Jökul Helgason og Gísla Karel Halldórsson frá Verkís hf, Óskar Sigvaldason frá Borgarverki og Gunnlaug A. Júlíusson og Ragnar Frank Kristjánsson frá Borgarbyggð.

Heimild: Borgarbyggð