Home Fréttir Í fréttum Mikið byggt á Hvammstanga

Mikið byggt á Hvammstanga

543
0

Norðlenska sjónvarpsstöðin N4 fjallaði nýverið um mikla uppbyggingu á Hvammstanga. Bærinn er miðstöð verslunar og þjónustu í Húnaþingi vestra og á undanförnum árum hefur ferðaþjónustan verið byggð upp í dag eru margar íbúðir og hús í byggingu.

<>

Rætt er við Guðnýju Hrund Karlsdóttur, sveitarstjóra í Húnaþingi vestra, og segir hún m.a. að búið sé að úthluta um 20 lóðum og að 6-7 hús séu komin vel af stað í byggingu. Hún segir mikla bjartsýni ríkja á meðal íbúa.

Hægt er að sjá umfjöllun N4 hér.

Heimild: Huni.is