Home Fréttir Í fréttum 22.08.2018 Laxárvatnslína 2, 132kV jarðstrengir, jarðvinna og lagning

22.08.2018 Laxárvatnslína 2, 132kV jarðstrengir, jarðvinna og lagning

419
0
Laxá III

Landsnet óskar eftir tilboðum í verk sem lýst er í útboðsgögnum LV2-01 sem bera heitið Laxárvatnslína 2, 132kV jarðstrengir, jarðvinna og lagning.

<>

Verkið felst í jarðvinnu og útdrætti á 132kV jarðstreng sem samanstendur af þremur einleiðurum sem hver um sig er um 70mm í þvermál (yfir kápu).

Strengleiðin er um 3 km og liggur frá tengivirki við Laxárvatnsvirkjun að fyrirhuguðu tengivirki fyrir gagnaver sem rísa á skammt suðaustur af Blönduósi. Leggja skal ljósleiðarrör með í skurð og ídráttarrör í þveranir.

Helstu áætluðu magntölur eru:

Slóðagerð                                                                                   400      m

Gröftur, söndun og fylling í skurð                                                 3000     m

Útdráttur jarðstrengja, jarðvírs og fjarskiptaröra                           3000     m

Ídráttarrör                                                                                   750      m

Frágangur yfirborðs                                                                      45000   m²

Lagnaleiðin liggur m.a. um tengivirkislóð Landsnets og þar gilda strangar öryggiskröfur, ásamt því að unnið er nærri vegi á kafla.

Verklok fyrir utan yfirborðsfrágang skulu vera eigi síðar en 10. desember 2018. Yfirborðsfrágangi og þar með verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 30. júní 2019.

Um er að ræða rafrænt útboðsferli sem framkvæmt er í Delta e-sourcing útboðskerfinu. Áhugasamir þátttakendur þurfa að skrá sig inn í kerfið og sækja útboðsgögn. Tilboðum og meðfylgjandi gögnum skal skila rafrænt í gegnum kerfið. Ef ýtt er á “Skoða nánar” hér að neðan, vísar það beint inn á útboðskerfið. Eftir að þátttakandi hefur skráð sig inn í kerfið skal notast við kóðann NYVMTEB99Z til að fá aðgang að þessu útboði. Athugið að öll samskipti þ.m.t. fyrirspurnir, viðaukar og svör eru afgreidd í gegnum kerfið. Athugið að kerfið er á ensku. 

Tilboðum skal skila rafrænt fyrir kl. 14.00 22.08.2018.

Tilboð verða opnuð hjá Landsneti, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Skoða nánar

Loading..