Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurgerð 2,3 km Búrfellsvegar frá Þingvallavegi að Búrfelli, ásamt útlögn klæðingar.
Helstu magntölur eru:
Fláafleygar 4.910 m3
Skeringar 4.795 m3
Ræsi 60 m
Fyllingar 8.715 m3
Neðra burðarlag 6.620 m3
Efra burðarlag 1.770 m3
Tvöföld klæðing 17.735 m2
Frágangur fláa 26.135 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. september 2015.
Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með mánudeginum 11. maí 2015. Verð útboðsgagna er 5.000 krónur.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 27. maí 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.