Home Fréttir Í fréttum Þessi sóttu um embætti forstjóra Vegagerðarinnar

Þessi sóttu um embætti forstjóra Vegagerðarinnar

329
0
Mynd: Vísir/Hanna

Alls sóttu 24 um embætti forstjóra Vegagerðarinnar. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipar í embættið til fimm ára og er miðað við að skipunin taki gildi 1. júlí næstkomandi.

<>

Þriggja manna nefnd hefur verið skipuð til að meta hæfni umsækjenda. Hún starfar í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og hefur til hliðsjónar reglur um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands. Í henni eiga sæti Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, Aðalsteinn Ingólfsson, forstjóri Skinneyjar-Þinganess og Guðný Elísabet Ingadóttir, mannauðsstjóri samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.

Umsækjendur:
Ásrún Rudolfsdóttir, forstöðumaður
Bergþóra Þorkelsdóttir, fyrrv. forstjóri
Bjarki Einarsson, sjómaður
Bjarni Óskar Halldórsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi
Einar Pálsson, kennari
Guðmundur Valur Guðmundsson, forstöðumaður
Hannes Alfreð Hannesson, fyrrv. framkvæmdastjóri
Ingunn Loftsdóttir, verkefnastjóri
Kristín Einarsdóttir, sviðsstjóri
Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri
Lilja Guðríður Karlsdóttir, framkvæmdastjóri
Magnús Rannver Rafnsson, lektor
Magnús Valur Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Ottó Valur Winther, sérfræðingur,
Ólafur Kristinn Guðmundsson, tæknistjóri
Ólöf Kristjánsdóttir, fagstjóri
Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, forstöðumaður
Róbert Ragnarsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi
Runólfur Ágústsson, framkvæmdastjóri
Sesselja Traustadóttir, framkvæmdastýra
Sigurður Áss Grétarsson, framkvæmdastjóri
Steindór Steindórsson, þjónustufulltrúi
Þorsteinn Egilsson, svæðisstjóri

Heimild: Visir.is