Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda SORPA semur við Ístak uppá 4 milljarða króna

SORPA semur við Ístak uppá 4 milljarða króna

438
0
Mynd: Sorpa.is

Stjórn SORPU samþykkti á stjórnarfundi í morgun að ganga til samninga við lægstbjóðandi í byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi, Ístak hf. sem bauð kr. 4.116.008.927,-.

<>

SORPA áformar byggingu á gas- og jarðgerðarstöð, til vinnslu á allt að 36.000 tonnum af heimilisúrgangi á ári. Gólfflötur byggingar er samtals áætlaður 12.000 m2 en  Reykjavíkurborg hefur úhlutað SORPU lóð á Álfsnesi sem er 85.000 m2 að stærð.

Gert er ráð fyrir að hægt verði að tvöfalda stærð stöðvarinnar í framtíðinni ef þörf krefur. Stöðin samanstendur af móttöku fyrir úrgang, vinnslusal og tíu þroskunarklefum fyrir lífrænan úrgang, auk tanka til gasgerðar.

Stöðin mun anna allt að 36.000 tonnum af lífrænum heimilisúrgangi og er áætlað að framleiðslan verði annars vegar um 3 milljónir Nm3 af metangasi, sem hægt er að nýta sem eldsneyti t.d. á ökutæki, og hins vegar 10-12.000 tonn af jarðvegsbæti sem hentar til landgræðslu.

Til viðbótar við vinnslusvæðin verður fræðslusetur og starfsmannaaðstaða sem og tæknirými.

Tæknilausn stöðvarinnar byggist á svokallaðri Aikan lausn, sem samið var um í árslok 2016 við Aikan/SolumAS  í Danmörku að undangengnu útboði á evrópska efnahagssvæðinu. Verkfræðistofan Mannvit hefur haldið utan um vinnu við útboð og Batteríið Arkitektar áttu verðlaunatillögu að útliti stöðvarinnar.

Gengið verður til samninga við Ístak á næstu dögum og áætlað er að taka stöðina í notkun undir árlok 2019. Þegar stöðin verður að fullu komin í gagnið er ráðgert að yfir 95% heimilisúrgangs verði endurnýttur með einum eða öðrum hætti.

 Heimild: Sorpa.is