Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu Grafninsvegar (360) frá Nesjavöllum og út fyrir Hagavík. Verkið felst í undirbyggingu vegarins á sama stað, lögn ræsa, útlögn og vinnslu burðarlaga og klæðingar á 5 km kafla.
Helstu magntölur eru:
- – Bergskeringar 1.000 m3
- – Aðrar skeringar 9.135 m3
- – Fyllingar 11.465 m3
- – Ræsalögn 168 m
- – Endafrágangur ræsa 16 stk.
- – Styrktarlag (neðra burðarlag) 8.810 m3
- – Burðarlag (efra burðarlag) 8.130 m3
- – Vegrið 395 m
- – Klæðing 32.650 m2
- – Frágangur fláa 63.565 m2
Verklok eru 15. október 2018, útlögn klæðingar skal þó lokið fyrir 15. september 2018.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 30. maí 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 15. maí 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.