Hrunamannahreppur óskar eftir tilboðum í verkið:
Útboð Vesturbrún 2018
Verklok eru 13. september 2018.
Verkið felur í sér endurgerð á götunni, Vesturbrún, þ.e. gröft á óburðarhæfu efni, útlagningu neðra burðarlags, gerð fráveitu, hitaveitu, ljósleiðaralagna og vatnsveitu, útlagningu efra burðarlags ásamt malbikun götu og gangstétta.
- Gröftur á lausu efni 2900 m³
- Fleygun 250 m³
- Neðra burðarlag 2500 m3
- Fráveitulagnir 415 m
- Vatnsveitulagnir 253 m
- Hitaveitulagnir 229 m
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með fimmtudeginum 12. apríl 2018. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Ingibjörgu hjá Eflu Suðurlandi í síma 412 6900, eða með tölvupósti á netfangið utbod.sudurland@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Hrunamannahrepps Akurgerði 6, 845 Flúðir fyrir kl. 11:00 miðvikudaginn 25. apríl 2018, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Heimild: Sveitarstjórinn í Hrunamannahreppi