Tilboð opnuð 10. apríl 2018. Gerð nýrrar vegtengingar Hafnavegar (44-01) við Reykjanesbraut, við hringtorg við Fitjar.
Verkið felst í nýbyggingu vegarins á um 850 m löngum kafla, og lokun á núverandi gatnamótum Reykjanesbrautar og Hafnavegar vestan við hringtorgið, með tilheyrandi rifi malbiks og yfirborðsfrágangi umferðareyja Reykjanesbrautar, sem og landmótun og yfirborðsjöfnun utan hennar.
Helstu magntölur eru:
- Skeringar 1.000 m3
- Rif malbiks og umferðareyja 2.200 m2
- Ræsi (fóðurrör) fyrir lagnir 123 m
- Fyllingar 12.500 m3
- Styrktarlag 5.900 m3
- Burðarlag 2.100 m3
- Malbik 9.150 m2
- Kantsteinn 225 m
- Umferðareyjar 775 m2
- Ljósastaurar 16 stk.
- Frágangur og landmótun 13.300 m2
Verklok eru 15. september 2018, gerð Hafnavegar skal þó lokið fyrir 15. ágúst 2018.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Ístak hf., Mosfellsbæ | 160.627.218 | 117,2 | 41.734 |
Háfell ehf., Reykjavík | 153.622.800 | 112,1 | 34.730 |
Áætlaður verktakakostnaður | 137.100.000 | 100,0 | 18.207 |
Ellert Skúlason ehf. Reykjavík | 122.875.500 | 89,6 | 3.982 |
Íslenskir aðalverktakar hf., Reykjavík | 118.893.244 | 86,7 | 0 |