Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á Suðursvæði 2018.
Helstu magntölur eru:
- Yfirlagnir með einföldu lagi klæðingar 388.871 m2
- Flutningur steinefna 5.270 m3
- Flutningur bindiefna 621 tonn
Útboðsgögnin eru seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 26. mars 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. apríl 2018 og kl. 14:15 sama dag verða tilboðin opnuð á sömu stöðum að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.