Home Fréttir Í fréttum Meta umhverfisáhrif framkvæmda við nýjan kirkjugarð neikvæð

Meta umhverfisáhrif framkvæmda við nýjan kirkjugarð neikvæð

202
0
Lagðar eru til mótvægisaðgerðir til að bregðast við umhverfisáhrifum vegna kirkjugarðsins í hlíð Úlfarsfells. Mynd: Vísir/Egill Aðalsteinsson

Umhverfisáhrif framkvæmda við nýjan kirkjugarð í Úlfarsárfelli eru metin á bilinu óveruleg til talsvert neikvæð en lagðar eru til mótvægisaðgerðir til að bregðast við þeim. Þetta kemur fram í frummatsskýrslu sem Reykjavíkurborg kynnti í Dalskóla í gær. Þar kemur fram að vörubílar þurfi að fara 36.000 til 57.000 ferðir með mold á svæðið á framkvæmdatímanum.

<>

Reykjavíkurborg hyggst gera nýjan kirkjugarð í vesturhlíð Úlfarsfells til að viðhalda framboði á kirkjugörðum á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdin er matsskyld og háð lögum um mat á umhverfisáhrifum vegna umfangs efnislosunar við mótun garðsins. Framkvæmdin felur í sér haugsetningu á 570.000 rúmmetrum af jarðvegi. Meginhluti þess jarðvegs, kemur frá uppbyggingarsvæðum í Vatnsmýri, Mjódd og Valssvæðinu.

Áhrif á loftgæði, landslag, ásýnd og útivistarsvæði

Heildarstærð hins nýja kirkjugarðs verður 22,5 hektarar. Nú þegar hefur verið lagður vegur að svæðinu og búið er að losa um 25.000 rúmmetra af  jarðvegi. Í frummatsskýrslu sem VSÓ ráðgjöf vann fyrir Reykjavíkurborg er áætlað að framkvæmdin taki um fimm ár.

Reykjavíkurborg hyggst gera nýjan kirkjugarð í vesturhlíð Úlfarsfells til að viðhalda framboði á kirkjugörðum á höfuðborgarsvæðinu.Skjáskot/Stöð 2

Þar kemur enn fremur fram að umhverfisáhrif framkvæmdarinnar í heild séu óveruleg til talsverð neikvæð. Þeir umhverfisþættir sem verði fyrir talsvert neikvæðum áhrifum séu loftgæði, landslag, ásýnd og útivistarsvæði sem verði fyrir óverulegum til talsvert neikvæðum áhrifum. Mótvægisaðgerðir eru lagðar til eins og að ræktaður verði skógur við svæðið í samráði við Skógræktina og að sáð verði í jarðveg.

Áætlað er að vörubílar aki um þúsund rúmmetrum af jarðvegi á svæðið á dag og þar sem um sé að ræða 570.000 rúmmetra megi búast við að ferðirnar vegna þessar framkvæmdar verði samtals um 36.000 til 57.000 talsins. Í framhaldinu verði leitað umsagnar hjá ýmsum stofnunum ríkis og borgar og þá sé hægt að nálgast frummatsskýrsluna á vef Reykjavíkurborgar.