Home Fréttir Í fréttum Fyrsta 5 stjörnu stjörnu hótel landsins í bígerð

Fyrsta 5 stjörnu stjörnu hótel landsins í bígerð

163
0

„Já við erum hér á fullu og vinnum af sömu framkvæmdagleði og foreldrar mínir gerðu með okkur í fjölskyldufyrirtækinu yfir 40 ár með Ofnasmiðju Suðurnesja og svo með Hótel Keflavík frá árinu 1986.

<>

Í dag erum við með á þriðja tug iðnaðarmanna og stafsmanna að hreinsa út veggi og gólfefni á 4. hæð hótelsins.

Þar erum við að vinna við að staðsetja fyrsta hlutann af Diamond Suites sem staðsett verður á efstu hæð hótelsins og reiknum við með að hafa 8 svítur til leigu í haust,“ segir Steinþór Jónsson hótelstjóri í viðtali við Víkurfréttir. Samt sem áður þurfi að koma þessu rými í gagnið fyrir 20. maí því þá sé því sem næst fullbókað út sumarið. Lokafrágangur og húsbúnaður til að svíturnar standist fimm stjörnu kröfur komi inn í rólegheitum næstu sex mánuði.

18 svítur og meiri lúxus 

Diamond Suites á Hótel Keflavík verður þar með sem fyrsta fimm stjörnu hótel landsins.  „Við ætlum alla leið í þessari framkvæmd með glæsilega innanstokksmuni og þjónustu og munum í mörgum þáttum vera með meiri lúxus en kröfur er gerðar um til fimm stjörnu hótela á alþjóðamarkaði. Ef vel gengur höfum við hafið hönnun á viðbótarhæð ofan á Vatnsnesveg 14 og ofan á álmuna við Framnesveg, samtals með 10 stórum svítum þannig að til lengri tíma litið yrðu 18 svítur reknar undir merkjum Diamond Suites, en 77 á Hótel Keflavík,“ segir Steinþór og bætir við að öll herbergi og almennt rými á Hótel Keflavík séu og verði að sama skapi í miklum endurgerðarfasa. „Þar verðum við með herbergi sem við viljum kalla 4 stjörnu superior og þá tengjum við okkur enn betur við fimm stjörnu herbergin á Diamond Suites.”

Hundruð milljóna framkvæmdir 

Aðspurður um áætlaðan heildarkostnað vegna framkvæmda síðustu tvö ár og til að klára fimm stjörnu framkvæmdir á Diamond Suites og ytra byrðis Hótel Keflavík, sem og endurnýjun herbergja, segir Steinþór þessar framkvæmdir hlaupa á hundruð milljóna króna. „Uppbygging hótelsins hefur þegar tekið tæp 30 ár en við sjáum í raun fyrir endann á þeim fyrir næsta vor á 30 ára afmæli hótelsins en þá verður tekin ákvörðun hvort við förum í þessa frekari stækkun á Diamonds Suites. Við er sérstaklega ánægð með að þetta fyrsta fimm stjörnu hótel landsins sé staðsett í Keflavík því við höfum frá upphafi haft mikla trú á okkar bæjarfélagi og þessi stóra fjárfesting sýnir að hugur fylgir máli,” segir Steinþór að lokum.

Heimild: Víkurfréttir.is