Home Fréttir Í fréttum Nýtt glæsihótel rammar inn gamla Geysisskólann

Nýtt glæsihótel rammar inn gamla Geysisskólann

234
0
Gamli íþróttasalurinn verður inni í nýja hótelinu. Mynd: Stöð 2/Egill Aðalsteinsson

Nýtt lúxushótel með veitingasölum fyrir áttahundruð gesti rís nú við Geysi í Haukadal en smíðin er sú stærsta í sögu ferðaþjónustu í uppsveitum Árnessýslu. Gamli íþróttaskólinn á Geysi verður rammaður inn í hótelið. Frá þessu var greint í fréttum Stöðvar 2.

<>
Grafísk mynd af nýja Hótel Geysi. Mynd/Hótel Geysir.

Ferðaþjónusta er rótgróin á Geysi. Hótelið sem nú er að rísa slær þó allt annað út.

Það eru Geysissystkinin Mábil og Sigurður Másbörn sem standa að verkinu en fullbúin verður byggingin samtals níuþúsund fermetrar að stærð. Stefnt er að því að hótelið klárist fyrir árslok en veitingasalir verða teknir í notkun í sumar.

„Hérna er verið að reisa 77 herbergja lúxushótel, – svona fjögurra stjörnu plús,” segir Sigurgeir Kristmannsson yfirsmiður.

Hann segir að veitingasalirnir leysi af gamla hótelið, sem var rifið niður í haust. Stefnt sé að því að gestir borði í nýju sölunum um miðjan júní.

Hér verða stærri veitingasalir en menn hafa áður séð í héraðinu; þrír salir sem taka samtals áttahundruð gesti í sæti og sá stærsti fyrir 400 manns.

Fjöldi manns kemur að smíðinni, eða um eða yfir þrjátíu manns, þar með taldir pípulagningamenn, rafvirkjar, verkamenn og smiðir, að sögn Sigurgeirs.

Stytta af glímuköppum við hótelið er minnisvarði um frægan íþróttaskóla sem Sigurður Greipsson rak á Geysi á árunum 1927 til 1971. Það eru einmitt barnabörn hans sem reisa hótelið.

„Merkinu verður haldið mjög vel á lofti vegna þess að inni í miðjunni á þessari byggingu stendur gamli íþróttaskólinn óhreyfður, sem var byggður um 1945.

Þannig að honum verður gert hátt undir höfði og hann verður þarna í óbreyttri mynd og í raun verður gerður eins og hann var í upphafi. Þannig að það verður haldið í gömlu hlutina,” segir yfirsmiðurinn.

Nánar verður fjallað um uppbygginguna í þættinum „Um land allt” á Stöð 2 næstkomandi mánudagskvöld en þátturinn verður um nærsveitir Gullfoss og Geysis, gullna hringinn, sem orðinn er eitt mesta vaxtarsvæði landsins.

Heimild: Visir.is