Home Fréttir Í fréttum Þetta er einn af stærstu áföngum framkvæmdarinnar

Þetta er einn af stærstu áföngum framkvæmdarinnar

371
0
Þaksteypa á Sjóböðunum. Mynd: 640.is/Ragnar Hermannsson

“Þetta er einn af stærstu áföngum framkvæmdarinnar” Sagði Ragnar Hermannsson hjá Trésmiðjunni Rein í morgun þegar þakið á Sjóböðunum á Húsavíkurhöfða var steypt.

<>

“Á fimm og hálfri klukkustund lögðum við niður um 150 rúmmetra af steypu 800 fermetra hellu.

Þetta markar tímamót í framkvæmdinni því nú er byggingin orðin vatsnheld að ofan og við getum farið að vinna innanhúss”. Sagði Ragnar og bætti við að Trésmiðjan Rein þakkar undirvertökum fyrir góða þjónustu við að koma þessu í verk og nú fari allir glaðir í páskafrí.

Heimild:640.is