Home Fréttir Í fréttum Námutrukkar v/ Dýrafjarðarganga fluttir í gegnum um Vestfjarðagöng í kvöld

Námutrukkar v/ Dýrafjarðarganga fluttir í gegnum um Vestfjarðagöng í kvöld

275
0
Mynd/Bæjarins Besta

Um kl. 21 í kvöld, fimmtudag verða þrír námutrukkar, sem nota á við gerð Dýrafjarðarganga, fluttir frá Ísafirði um Vestfjarðagöng og á áfangastað í Dýrafirði.

<>

Verða trukkarnir fluttir einn í einu, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum.

Af þeim sökum munu Vestfjarðagöng verða lokuð í þau þrjú skipti sem trukkarnir fara í gegnum þau. Það má búast við að hver lokun geti varað um nokkra stund, enda stór tæki og lítið svigrúm með pláss, sem kallar á flutningshraða í samræmi við það.

Ekki er hægt að tímasetja hverja lokun nákvæmlega, fyrir utan að sú fyrsta er áætluð kl. 21 eins og áður segir en með því er reynt að tryggja að lokunum verði lokið fyrir fyrramálið.

Heimild: Visir.is