Home Fréttir Í fréttum 28.03.2018 Dúkalagningar í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar 2018

28.03.2018 Dúkalagningar í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar 2018

145
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Dúkalagningar í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar 2018. Útboð nr. 14178

Verk þetta felst í teppa- og dúkalögn í 20 fasteignum Reykjavíkurborgar.

Fasteigninar eru : Árbæjarskóli, Ársel, Austurbæjarskóli, Bakkaborg, Breiðholtsskóli, Fellaskóli, Furuskógur Furuborg, Gerðuberg 1, Hólabrekkuskóli, Háaleitisskóli – Álftamýrarskóli, Háaleitisskóli – Hvassaleitisskóli, Hagaskóli, Háteigsskóli, Hraunborg, Ísaksskóli, Klébersskóli, Laugarlækjarskóli, Seljaskóli, Réttarholtsskóli og Ölduselsskóli.

Um er að ræða rif og dúklagningu linoleumdúka, vinyldúka og teppa

Helstu magntölur eru: 
Linóleum dúkar:       3.060 m2
Vinyl dúkar:                   26 m2
Teppi                              83m2

Lokaskiladagur verksins er  10. ágúst 2018.

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni:  http://utbod.reykjavik.is, frá kl. 12:00 þann 14. mars 2018. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 28 . mars 2018.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is