Home Fréttir Í fréttum Skóflustungan tekin að 720 m2 byggingu Skipalyftunnar í Vestmannaeyjum

Skóflustungan tekin að 720 m2 byggingu Skipalyftunnar í Vestmannaeyjum

135
0
Mynd: Eyjar.net

Í gær var fyrsta skóflustungan tekin að 720 m2 byggingu Skipalyftunnar. Húsið er staðsett norðan megin við núverandi húsnæði Skipalyftunnar á Eiðinu.

<>

Það voru þau Anna Sigrid Karlsdóttir og Hlynur Geir Richardsson starfsmenn Skipalyftunnar sem fengu þann heiður að taka fyrstu skóflustunguna. Þau hafa lengstan starfsaldur hjá fyrirtækinu auk Stefáns Jónssonar, sem einnig er einn eiganda.

Stefán sagði í samtali við Eyjar.net að til standi að færa hluta af smiðjunni í nýbygginguna.

Í dag er áætlað að flytja renni- og vélaverkstæðið og hluta lagersins þarna yfir. segir Stefán.

Það var Halldór Hjörleifsson sem teiknaði húsið. Helstu stærðir eru: LxB = 40 x 18m. Vegghæðin er 6,5m og hæð í mæni verður 8,9m. Húsið er að hluta til tvær hæðir.

Heimild: Eyjar.net