Home Fréttir Í fréttum 03.04.2018 Hverfið mitt 2018 austurhluti, útboð 1 – Breiðholt.

03.04.2018 Hverfið mitt 2018 austurhluti, útboð 1 – Breiðholt.

291
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Hverfið mitt 2018 austurhluti, útboð 1 – Breiðholt. Útboð nr. 14204.

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Verkið felst í framkvæmdum á hluta þeirra verkefna sem hlutu kosningu í gegnum verkefnið Hverfið mitt 2018 í austurhluta Reykjavíkurborgar.

Í þessu verki er um að ræða verkefni í hverfi 6, þ.e. Breiðholti. Verkefnin eru fjölbreytt og eru helstu verkliðir jarðvinna, steypa stétt, hellulögn, malbikun og þökulögn.

Helstu magntölur eru:

· Gröftur                       430 m3

· Fylling                        270 m3

· Steypt stétt                 210 m2

· Hellulögn                   100 m2

· Malbik                        280 m2

· Þökulögn                    2.200 m2

Verklok: September 2017

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 15. mars 2018.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 3. apríl 2018.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is