Home Fréttir Í fréttum Leigusamningur um nýtt húsnæði fyrir Hafrannsóknastofnun undirritaður

Leigusamningur um nýtt húsnæði fyrir Hafrannsóknastofnun undirritaður

344
0
Myndir: Fsr /Batteríið arkitektar

Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Jón Rúnar Halldórsson, hjá eignarhaldsfélaginu Fornubúðum ehf., undirrituðu í þessari viku leigusamning um nýtt húsnæði fyrir Hafrannsóknastofnun.

<>
Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Jón Rúnar Halldórsson, hjá eignarhaldsfélaginu Fornubúðum ehf.

Húsið mun rísa að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði. Samkvæmt samningnum verður húsið afhent stofnuninni í maí 2019. Með nýju húsi mun starfsemi Hafrannsóknastofnunar á höfuðborgarsvæðinu færast á einn stað, en í dag eru höfuðstöðvar stofnunarinnar að Skúlagötu 4 en geymslur og skemmur við Grandagarð.

 

Nýbyggingin verður um 4.080 m² skrifstofu- og rannsóknarými. Þá verður geymsla, verkstæði og útgerðaraðstaða í um 1.440 m² eldri byggingu. Rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar fá lægi við Suðurbakkann í Hafnarfjarðarhöfn.

Heimild: Framkvæmdasýsla ríkisins.