Hugmyndin, sem kynnt var fyrir sveitarstjórn í október, gerði ráð fyrir gríðarmikilli uppbyggingu á staðnum. Hún átti að vera í fimm þáttum: fyrst yrði byggt fjögurra eða fimm stjörnu, 120-160 herbergja hótel ásamt heilsulind, sundlaug og veitingastað, síðan þjónustumiðstöð ásamt tjaldsvæði, því næst tveggja til þriggja stjörnu hótel fyrir efnaminni ferðamenn, þar á eftir kæmu heilsársbústaðir ásamt íþróttasvæði og gróðurhúsum og loks yrði gerður 18 holu golfvöllur og klúbbhús.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar tók málið fyrir á fundi sínum 1. febrúar og í fundargerðinni segir að sveitarstjórnin geti ekki fallist á þessar upphaflegu hugmyndir. „Þetta voru bara svo stórar og miklar hugmyndir og mikil áform,“ útskýrir Helgi Kjartansson í samtali við fréttastofu. Hann segir að sveitastjórnin hafi verið einhuga um að leggjast gegn áformunum í þessari mynd – þær yrðu of mikið inngrip í umhverfið.
Fái grænt ljós hjá umhverfisráðherra fyrst
Tekið er fram í fundargerðinni að sveitarstjórnin leggist ekki gegn því að landeigendur vinni áfram að hugmyndum um hótelbyggingu. Helgi segir að þær hugmyndir verði þó að vera smærri í sniðum.
Skálabrekkujörðin er inni á vatnsverndarsvæði Þingvalla og Helgi segir að mjög ströng skilyrði gildi um það sem megi gera innan þess. Þess vegna telji sveitarstjórnarmenn réttast að landeigendur snúi sér fyrst til umhverfisráðuneytisins, vilji þeir skoða frekar möguleikann á hóteluppbyggingu á svæðinu. Ráðherrann þurfi enda að gefa grænt ljós að uppbyggingu á vatnsverndarsvæði.
Heimild: Ruv.is