Home Fréttir Í fréttum 15.03.2018 Skóli, menningarhús, bókasafn og sundlaug 4. og 5. áfangar – Uppsteypa...

15.03.2018 Skóli, menningarhús, bókasafn og sundlaug 4. og 5. áfangar – Uppsteypa og frágangur utanhúss – EES

220
0
Úlfarsárdalur

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:

<>

 Skóli, menningarhús, bókasafn og sundlaug 4. og 5. áfangar – Uppsteypa og frágangur utanhúss. EES útboð nr. 14085.

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is –  frá kl. 15:00 mánudaginn 29. janúar 2018.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.

Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en:  Kl. 14:00 þann 15. mars 2018.

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Verkið felst í jarðvinnu, lagningu botnlagna, uppsteypu, gluggaísetningu og fullnaðarfrágangi að utan nýrrar sundlaugar-, menningarhús- og bókasafnsbyggingar við Dalsskóla í Úlfarsárdal.

Byggingin  er sunnan við Úlfarsbraut og austan við núverandi grunnskólabyggingu Dalsskóla sem er 2. áfangi í byggingakeðju mannvirkjanna við Úlfarsbraut 122-124  í Úlfarsárdal.

Helstu verkþættir eru:

Uppsteypa:  Steinsteypt burðarvirki

Frágangur utanhúss:  Einangrun og klæðning útveggja og þaka.  Gluggaísetningar.

Lagnir: Lagnir í jörð.