HUG verktakar áttu lægsta tilboð í breytingar á Skógarbraut 932 á Ásbrú í leikskóla. Tilboðið hljóðaði upp á tæplega 74 milljónir króna og hefur bæjarráð samþykkt að ganga til samninga við vertakafyrirtækið um framkvæmdina. Útboðið á verkinu var unnið í samvinnu við Ríkiskaup og buðu fjögur fyrirtæki í verkið.
Húsnæðið var fært Reykjanesbæ að gjöf af fasteignafélögum sem hafa starfsemi á Ásbrú og verður samið um verkið með fyrirvara um afhendingu og útgáfu afsals fyrir fasteigninni að Skógarbraut 932.
Hér fyrir neðan má sjá tilboð í verkið auk kostnaðaráætlunar Reykjanesbæjar:
Bjóðandi: Hýsi
Heildartilboðsupphæð með VSK: 118.307.870,-
Bjóðandi: Hjálmarsson ehf.
Heildartilboðsupphæð með VSK: 99.464.349,-
Bjóðandi: TSA ehf.
Heildartilboðsupphæð með VSK: 76.993.340,-
Bjóðandi: HUG verktakar ehf.
Heildartilboðsupphæð með VSK: 73.949.142,-
Kostnaðaráætlun: 77.867.098,-
Heimild: Sudurnes.net