Hafnir Ísafjarðarbæjar óska eftir tilboðum í ofangreint verk.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
Á Ísafirði:
- Reka niður 28 stk af tvöföldum stálþilsplötum og ganga frá stögum.
- Jarðvinna, upptekt á núverandi garði, fylling fyrir innan þil og grjótröðun við enda þils.
- Steypa um 40 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.
Á Flateyri:
- Djúpþjöppun við hafnarkantinn á Flateyri.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2018.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og á skrifstofu Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu, 400 Ísafjörður frá og með miðvikudeginum 3. janúar 2018. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 17. janúar 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag