11.12.2017
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sópun meðfram kantsteinum ásamt hreinsun grassvæða meðfram þjóðvegum í Reykjavík, með vélsópum, sugum og öðrum tækjum sem henta þykir.
Helstu magntölur eru:
- Sópun meðfram kantasteinum 165.000 m
- Þvottur á gatnamótum og umferðareyjum 63 stk.
- Ruslahreinsun meðfram þjóðvegum 12 yfirferðir
Verklok eru 14. mars 2021.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 12. desember 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. janúar 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.