F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Háaleitisskóli Álftamýri 79 – Endurbætur utanhúss – Útboð nr. 14112.
Verkið felst í:
Háþrýstiþvotti og steypuviðgerðum á öllu húsinu, endurbótum og viðgerðum á glugga- og hurðakerfi hússins, viðgerðum á þökum, endurmálun alls hússins og öðru sem tekið er fram í útboðsgögnum. Viðgerðir á múrklæðningu og viðgerðir á þakköntum eru einnig hluti verksins. Að innanverðu er um að ræða rif flata á útveggjum og enduruppbyggingu þeirra.
Helstu magntölur eru:
| Verkþáttur: | Ein. | Magn |
| Háþrýstiþvottur | m2 | 1205 |
| Sprunguviðgerðir | m | 1250 |
| Múrviðgerðir | m2 | 87 |
| Filtun veggflata | m2 | 572 |
| Glerskipti | m2 | 383 |
| Endunýjun glerlista | m | 1280 |
| Endurnýjun opnanlegra faga | stk | 81 |
| Sílanböðun | m2 | 572 |
| Málun steyptra flata | m2 | 1205 |
| Rif og enduruppbygging flata | m2 | 70 |
Verklok eru 17. ágúst 2018.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá þriðjudeginum 12. desember 2017.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 11. janúar 2018.












