Home Fréttir Í fréttum Segja ekki byggt í Víkurgarði og hótel fær grænt ljós

Segja ekki byggt í Víkurgarði og hótel fær grænt ljós

230
0
Framkvæmdum við hótelið við Austurvöll átti að ljúka vorið 2018. Mynd/Lindarvatn

Ósk Lindarvatns ehf. um breytt deiliskipulag á Landsímareit vegna hótelbyggingar þar var samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði í gær.

<>

Á sama tíma ræddi kirkjuþing um bókun þar sem skorað er á yfirvöld að koma í veg fyrir framkvæmdir sem raski gröfum í Víkurgarði.

Halla Halldórsdóttir, lengst til hægri, mælti fyrir breytingartillögu um ályktun kirkjuþings vegna Víkurgarðs. Mynd: Fréttablaðið/Anton Brink

Eins og sagt hefur verið frá í Fréttablaðinu bárust borginni mörg mótmæli vegna áformanna. Umhverfis- og skipulagsráð segir deiliskipulagið í heild hins vegar endurspegla og taka fullt mið af fyrri niðurstöðu um vernd húsa á reitnum. Gera megi ráð fyrir að minjum um byggð eða greftrun á reitnum verði ekki raskað frekar en orðið sé vegna byggingarframkvæmdanna.

„Loks er minnt á að ákveðið hefur verið að halda samkeppni um torgið yfir Víkurgarði og að þar verði haldið á lofti minningu garðs og kirkju sem þar stóð um aldir,“ segir í bókun skipulagráðs.

Í gær samþykkti kirkjuþing 2017 að fela kirkjuráði að koma á framfæri við „þar til bær stjórnvöld“ að lög og reglur um niðurlagða kirkjugarða séu virt hvað varðar Víkurgarð. Vísað var til laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu:

„Niðurlagðan kirkjugarð má ekki nota til neins þess sem óviðeigandi er að dóm prófasts. Ekki má þar jarðrask gera né reisa nein mannvirki.“

Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík segir í umsögn að engar fyrirætlanir séu í deiliskipulagstillögunni um að byggja í Víkurgarði sem áður hafi verið kirkjugarður en sé nú almenningsgarður.

Heimild: Visir.is