F.h. Sjóminjasafnsins í Reykjavík er óskað hér með eftir tilboðum í:
Frágang innanhúss – Útboð nr. 14101.
Verkið felst í:
Frágangi innanhúss þ.m.t. Gifsveggir, málun, raflagnir, loftræsing, innihurðir, múrverk, flísalögn og frágangur lofta.
· Fyrirspurnarfrestur útrunninn: 25. nóvember 2017 – kl. 13:00.
· Svarfrestur útrunninn: 28 nóvember 2017.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: https://utbod.reykjavik.is – frá kl. 10:00 þriðjudaginn 14. nóvember 2017. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 14:00 þann 4. desember 2017.