Home Fréttir Í fréttum 28.11.2017 „Uppbygging fráveitukerfis á Höfn – Jarðvinna og lagnir-2. áfangi okt. 2017“

28.11.2017 „Uppbygging fráveitukerfis á Höfn – Jarðvinna og lagnir-2. áfangi okt. 2017“

168
0
Hornafjörður

Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið „Uppbygging fráveitukerfis á Höfn – Jarðvinna og lagnir-2. áfangi okt. 2017“ eins og því er lýst í útboðsgögnum.

<>

Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Um er að ræða 2. áfanga uppbyggingu fráveitukerfis á Höfn sem felur í sér að koma fyrir lögnum frá sniðræsi, þar sem það endaði í 1. áfanga verksins á móts við syðri enda Ránarslóðar 3 (Ásgarðs), leggja lögnina í gegnum hafnarsvæðið að sláturhúsi og langleiðina að gatnamótum Víkurbrautar og Álaugarvegar. Einnig er um að ræða regnvatnslagnir í hluta af leiðinni ásamt niðurföllum. Einnig þarf verktaki að koma fyrir bráðabrigða lögn frá væntanlegu hreinsivirki við Miðós og að núverandi brunni sem er u.þ.b. 300 m austar í Miðós. Um er að ræða gröft fyrir lögnum, söndun og frágang þeirra, fyllingu og frágang í og við lagnaskurði

Einnig er um að ræða rif og förgun á timburbryggju í norðvestur hluta hafnarinnar. Fyllt verður upp í hluta kverkarinnar sem þessi bryggja stendur í dag. Um er að ræða að koma fyrir burðarhæfri fyllingu, utan á hana kjarna og þar utan á grjótvörn.

Helstu magntölur eru u.þ.b.:

Gröftur fyrir lögnum, lengd skurða                            960 m.

Fylling undir lagnir                                                   1.100 m³

Fylling í lagnaskurð (uppgrafið efni)                           1.300 m³

Fylling í lagnaskurð (aðkomið efni)                               650 m³

Söndun lagna                                                           1.000 m³

Landfylling (burðarhæft efni)                                      1.150 m³

Kjarni undir grjótvörn                                                      350 m³

Grjótvörn (aðkomið efni)                                              300 m³

Grjótvörn (efni á staðnum)                                           100 m³

Skólp- og regnvatnslagnir                                          1.330 m.

Ídráttarrör fyrir ljósleiðaralagnir.                                   675 m.

Skólp- og regnvatnsbrunnar með járnloki                     20 stk.

Miðað er við að full ljúka öllum verkþáttum útboðs.

Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Björn Imsland á skrifstofu sveitarfélagsins eða með tölvupósti í netfangið utbod@hornafjordur.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.

Útboðsgögn má nálgast á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjarðar að Hafnarbraut 27 Höfn frá og með fimmtudeginum 2. nóvember 2017 gegn 5.000 kr. greiðslu.

Tilboðsgjafar skulu vera búnir að skila inn tilboði eigi síðar en þriðjudaginn 28. nóvember 2017 kl. 14:00 er þau verða opnuð samtímis í viðurvist þeirra bjóðenda sem óska eftir að vera viðstaddir.

Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Tilboð er bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.