Home Fréttir Í fréttum Móðurfélag Toyota kaupir Kraftvélar

Móðurfélag Toyota kaupir Kraftvélar

139
0
Mynd: Visir.is

Gengið hefur verið frá kaupum UK fjárfestinga ehf., sem er móðurfélag Toyota á Íslandi, á 85 prósenta hlut í Kraftvélum og Kraftvélaleigunni. Kraftvélar eru þar með orðnar systurfélag Toyota á Íslandi og Toyota Kauptúni.

<>

Þetta kemur fram í tilkynningu. Rafhlutir ehf., félag feðganna Ævars Björns Þorsteinssonar, forstjóra Kraftvéla, og Viktors Karls Ævarssonar, framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs, mun eftir söluna eiga 15 prósenta hlut í Kraftvélum og Kraftvélaleigunni.

Kraftvélar selja vinnuvélar fyrir byggingaiðnað, vegagerð, vörumeðhöndlun og landbúnað, meðal annars gröfur frá Komatsu og lyftara frá Toyota. Umsvif fyrirtækisins hafa vaxið í takt við auknar framkvæmdir í landinu á undanförnum misserum. Þannig óx heildarmarkaður fyrir vinnuvélar um 44 prósent á fyrstu 9 mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra.

Heimild:  Visir.is