Tilboð opnuð 26. september 2017. Ggerð stjórnkerfis í Vaðlaheiðargöng. Framkvæmdin sem hér um ræðir nær yfir gerð stjórnkerfis í Vaðlaheiðargöng en þau eru um 7,5 km löng, á milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals. Stjórnkerfið hefur það hlutverk að fylgjast með ástandi í göngunum, skrá það, stjórna loftræsingu og láta vita af öllum bilunum og ef það skapast hættusástand. Innifalið í verkinu er smíði stjórn- og neyðarsímaskápa, iðntölvubúnaður, forritun búnaðarins samkvæmt verklýsingu, prófun búnaðarins og gerð handbóka um kerfið.
Helstu magntölur verksins eru:
- a) Stjórnskápar 6 stk.
- b) Símaskápar 15 stk.
- c) Símaklefar innrétting 16 stk.
- d) Iðntölvubúnaður 33 stýrivélar og fjar I/O
- e) Netbúnaður 39 stk.
- f) Forritum stjórnkerfis samkvæmt kröfum
- g) Stýriteikningar fyrir stjórnskápa
- h) Prófun alls búnaðar
- i) Gerð handbóka um kerfið
Verki skal lokið að fullu 31. júlí 2018.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Áætlaður verktakakostnaður | 89.623.106 | 100,0 | 17.336 |
Rafal ehf., Hafnarfirði | 85.561.201 | 95,5 | 13.274 |
Rafskaut ehf., Ísafirði | 82.635.738 | 92,2 | 10.348 |
Rafeyri ehf., Akureyri | 81.317.625 | 90,7 | 9.030 |
Rafmenn ehf., Akureyr | 72.287.508 | 80,7 | 0 |