Home Fréttir Í fréttum Forstjóri Regins undrandi og óskaði eftir skýringum frá H&M

Forstjóri Regins undrandi og óskaði eftir skýringum frá H&M

178
0
Opna á þriðju verslun H&M hér á land á Hafnartorgi þegar framkvæmdum þar verður lokið um mitt næsta ár. Mynd: vísir/ernir

Stjórnendur Regins óskuðu í vikunni eftir staðfestingu forsvarsmanna H&M um að enn standi til að opna þriðju verslun sænska fatarisans hér á landi á Hafnartorgi í miðbæ Reykjavíkur.

<>

Forstjóri fasteignafélagsins segir orð forstjóra H&M Group í síðustu viku, um að ekki sé fullvíst að verslunin verði opnuð þar, hafa komið á óvart og vísar í leigusamning sem undirritaður var í júlí í fyrra.

Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins.vísir/gva

„Það er búið að skrifa undir tvo samninga um þessa leigufermetra sem við kynntum og þeir eru enn í gildi. Það er verið að byggja þessi hús og sérinnrétta fyrir H&M og samskipti oft í viku við hönnunarteymi þeirra og þetta er á fleygiferð,“ segir Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins.

Karl-Johan Persson, forstjóri H&M Group, sagði í samtali við Viðskiptablaðið síðasta fimmtudag að opnun verslunar sænska fatarisans á Hafnartorgi muni ráðast af gengi H&M í Smáralind og Kringlunni. Búið væri að taka ákvörðun um að opna þær tvær en sú þriðja væri í vinnslu, eins og Persson orðaði það.

Helgi vill ekki tjá sig frekar um málið að öðru leyti en að staðfesta að hann hafi óskað skýringa hjá H&M. Aftur á móti hafi hvorki Reginn né H&M farið fram á leiðréttingu á því sem haft var eftir Persson í viðtalinu.

Reginn keypti um 8.600 fermetra verslunar- og veitingarými á Hafnartorgsreitnum sem nú er í byggingu. Verklok eru áætluð um mitt næsta ár. Fasteignafélagið og dótturfélag þess, Eignarhaldsfélagið Smáralind, undirrituðu 8. júlí í fyrra leigusamninga við H&M um opnun verslana í Smáralind og á Hafnartorgi. Ljóst er að opnun H&M á torginu er mikilvægur hlekkur í uppbyggingu þess en líkt og Fréttablaðið greindi frá í síðasta mánuði hafa stjórnendur Regins átt í viðræðum við marga aðra mögulega leigutaka og þar á meðal dönsku húsgagna- og búsáhaldaverslunina Illums Bolighus.

„Auðvitað er þetta stórt svæði en þetta er minni verslun en flaggskipið í Smáralind en stærri en verslun þeirra í Kringlunni,“ svarar Helgi aðspurður hvort stjórnendur Regins líti ekki svo á að H&M sé kjölfestuleigjandi á Hafnartorginu.

Heimild: Visir.is