Home Fréttir Útboð 12.10.2017 Menntaskólinn í Reykjavík og Kvennaskólinn í Reykjavík – þjónustusamningur um raflagnir

12.10.2017 Menntaskólinn í Reykjavík og Kvennaskólinn í Reykjavík – þjónustusamningur um raflagnir

470
0
Mynd: Visir.is

Ríkiseignir óska eftir rafvirkjum til að taka þátt  í  örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald raflagna í Menntaskólanum í Reykjavík og Kvennaskólanum í Reykjavík. Verkefnið felst í almennu viðhaldi á raflögnum, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

<>

Gefa skal verð í 900 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 70 ferðir vegna efnisöflunar.

Þeir sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 12. október 2017 kl. 14.00.