Home Fréttir Í fréttum Ætla í uppbyggingu fyrir 30 milljarða á Akureyri

Ætla í uppbyggingu fyrir 30 milljarða á Akureyri

524
0
AtNorth stefnir að mikilli uppbyggingu í Hlíðarfjalli RÚV – Kristófer Óli Birkisson

Gagnaversfyrirtækið AtNorth stefnir að uppbyggingu fyrir þrjátíu milljarða króna á Akureyri. Akureyrarbær hefur veitt vilyrði fyrir stækkun lóðar við núverandi gagnaver og gert er ráð fyrir að framkvæmdir geti hafist á þessu ári.

Gagnaver atNorth í Hlíðarfjalli á Akureyri hefur stækkað hratt frá því framkvæmdir hófust árið 2022. Sex gagnaversbyggingar eru risnar á svæðinu og grunnurinn hefur verið tekinn að þeirri sjöundu. Fyrirtækið stefnir á að reisa tíu slíkar til viðbótar, ásamt spennistöð til að tryggja rekstraröryggi og afhendingargetu til framtíðar.

Uppbyggingin er kostnaðarsöm enda kostar hver tölvuskápur í gagnaverinu hundruð milljóna og metur atNorth að heildarkostnaður verkefnisins nemi um 30 milljörðum króna. Telja þeir að þar af fari 12 milljarðar í að kaupa þjónustu af verktökum til uppbyggingar.

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, fagnar uppbyggingunni enda skilar hún bænum töluverðum tekjum:

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri.
RÚV / Ágúst Ólafsson

„Þetta er einhver mesta atvinnuuppbygging sem hefur verið hér á Akureyri í langan tíma þannig við fögnum þessu bara mjög eindregið. Við fáum til okkar fasteignagjöld, gatnagerðargjöld og síðan byggingarréttargjald sem skilar sér beint til okkar og svo auðvitað útsvar frá starfsfólkinu sem þarna vinnur.“

Að mati atNorth hefur eftirspurn eftir þjónustu verið meiri en þeir reiknuðu með og vilja þeir því stækka hratt. Starfsemin kostar töluverða raforku og telur Ásthildur að tryggja þurfi öruggan flutning hennar og nægt framboð:

„Eins og sakir standa er næg raforka en það getur breyst mjög hratt ef að það er frekari áhugi á atvinnuuppbyggingu í landinu,“ sagði Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri.

Heimild: Ruv.is