Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 19.05.2026 Gils­árteigs­vegur (948) – Endur­bætur á brú á heim­reið – Útboð

19.05.2026 Gils­árteigs­vegur (948) – Endur­bætur á brú á heim­reið – Útboð

76
0
Opnun útboðs
Eiðar. Mynd: RÚV – Rúnar Snær Reynisson

Útboð:

Vegagerðin býður hér með út endurbætur á brú á heimreið á Gilsárteigsvegi (948) í Eiðaþinghá, um 16 km norðan við Egilsstaði. Í verkinu felst útskipting á núverandi stálbitum í brúargólfi, endurnýjun á slitlagi og bríkum í timburgólfi, útskipting á brúarvegriði og styrkingar á þverviðum brúargólfs við vegriðsstólpa, og steypuviðgerðir á landstöplum.

Helstu magntölur eru:
Rif og flutningur brúa
Heild
Vegrið á brú
24 m
Tengivegrið
44 m
Steypumót
15 m2
Járnalögn
300 kg
Steypa
4 m3
Stálvirki
4.400 kg
Stálvirki yfirborðsmeðhöndlun
62 m2
Endurnýjun hluta timburgólfs
12 m

Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með þriðjudeginum 28 apríl 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. maí 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.