Reykjavíkurborg hyggst verja meiri fjármunum til viðgerða og endurnýjunar á malbiki á þessu ári en nokkru sinni áður. Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir 1.460 milljónum króna til verkefnisins og er það ríflega tvöföldun frá því í fyrra.
Áhersla er lögð á endurnýjun bæði með fræsingu og malbikun, sem og malbikun yfirlaga og er það gert til að koma í veg fyrir miklar og kostnaðarsamar viðgerðir síðar. Áætlað er að slík endurnýjun verði í ár 243.000 fermetrar eða sem nemur um 32 kílómetrum í lengd gatna. Að auki, og fyrir utan fyrrgreindan kostnað, kemur nýtt malbik á götur sem endurnýjaðar eru frá grunni, s.s. endurgerð Hafnarstrætis milli Pósthússtrætis og Tryggvagötu, sem og vegna endurgerðar gatnamóta Lækjargötu og Geirsgötu. Þá eru framkvæmdir Vegagerðarinnar á stofnbrautum ekki inni í þessum tölum, segir í frétt borgarinnar.
Borgarráð heimilaði á fundi sínum í gær að malbikunarframkvæmdir ársins yrðu boðnar út. Gerð hefur verið áætlun um endurnýjun og viðgerðir á malbiki á götum borgarinnar til næstu fimm ára. Í fjárhagsáætlun 2017 til 2021 er lagt til að varið verði 8.380 milljónum króna til verkefnisins.
Fyrstu þrjú árin (2017-2019) verður áhersla lögð á endurnýjun malbiksyfirlagna einkum á umferðarþungum götum til að koma í veg fyrir miklar og kostnaðarsamar viðgerðir síðar. Á árunum 2020-2021 er ætlunin að endurnýja fjölmargar götur sem þá hafa náð líftíma sínum og eru það einkum íbúðagötur í Breiðholti, Árbæ og Grafarvogi.
Heimild: Visir.is