
Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ
Framkvæmdum við Fossvogsbrú miðar vel áfram að sögn yfirverkstjóra og eru nú komnar á það stig að sjá má burðarverk brúarinnar skaga upp úr lygnu hafi milli Kársness og Skerjafjarðar.

Allir staurarnir eru komnir niður landmegin í Kársnesi í hinu svokallaða landkari, þar sem brúin kemur á land, og segir yfirverkstjóri framkvæmdarinnar, Guðjón Örn Björnsson, vel hafa gengið að koma þeim niður.
Næsta skref framkvæmdarinnar er að setja átta metra löng og fimmtán metra breið þurrkví utan um staurana svo hægt verði að steypa neðansjávargrunn brúarinnar og gera hana trausta.

Verklok áætluð eftir tvö ár
Verkið er hluti af fyrstu lotu borgarlínu og uppbyggingu fyrir þróunarsvæði í Skerjafirði, en vinna við landfyllingar hófst í janúar síðasta árs Kársnesmegin.
Áætlað er að sjálfar undirstöður brúarinnar komi til landsins frá Póllandi, þar sem þær eru nú í smíðum, um miðbik næsta árs ásamt öðrum hlutum brúarinnar sem lagðir verða á undirstöðuna sama ár.

Ítarlega útlistun Morgunblaðsins á næstu skrefum verksins má nálgast í greininni hér að neðan, en eins og áður hefur komið fram eru verklok við byggingu brúarinnar áætluð þann 16. júní árið 2028.
Heimild: Mbl.is
Efni: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ











