Home Fréttir Í fréttum Innanhússframkvæmdir á meðferðarkjarna Nýs Landspítala á fullri ferð

Innanhússframkvæmdir á meðferðarkjarna Nýs Landspítala á fullri ferð

21
0
Innanhússframkvæmdir á meðferðarkjarna Nýs Landspítala á fullri ferð
Mynd: NLSH ohf.

Innanhússframkvæmdir á meðferðarkjarna Nýs Landspítala á fullri ferð

Framkvæmdir við meðferðarkjarna Nýs Landspítala halda áfram af fullum krafti og vinna við innanhússfrágang legudeilda gengur vel. Verkið er nú á fjölmörgum stigum samtímis og sífellt fleiri verkþættir bætast við umfangsmikla uppbyggingu sjúkrahússins.

Unnið er í öllum fjórum stöngum meðferðarkjarnans, en í stöngum eitt og tvö er framkvæmdum lengst komið. Þar er flísalögn, dúklögn og uppsetning kerfislofta hafin, auk málningarvinnu á veggjum.

„Í stöngum fjögur og fimm er verið að setja upp veggi auk pípu- og raflagna. Áætluð verklok eru í janúar 2028 og verktaki verksins er ÞG verk,“ segir Sigurjón Sigurjónsson, staðarverkfræðingur hjá NLSH.

Innanhússfrágangur á neðri hæðum í fullum gangi

Á neðri hæðum meðferðarkjarnans eru framkvæmdir einnig komnar á fullt skrið. Ílögn hefur gengið vel og nú hefur verið lagt í gólf á fyrstu til þriðju hæð í stöngum eitt og tvö. Í fyrri útboðum hefur jafnframt verið lokið við ílögn í kjallara og á legudeildum á fimmtu og sjöttu hæð.

Uppsetning innveggja er hafin á nokkrum svæðum hússins og unnið er að henni í kjallara og á annarri og þriðju hæð. Samhliða því fer fram málningarvinna á völdum svæðum fyrir ofan kerfisloft og undirbúningur fyrir næstu verkáfanga.

Baðherbergi á sjöttu hæð í stöng 2. Mynd: NLSH ohf.

Tæknikerfi og samræming umfangsmikilla framkvæmda

Hliðarverktakar á sviði pípulagna og loftræsingar hafa hafið undirbúning framkvæmda á neðri hæðum hússins. Gert er ráð fyrir að vinna við tæknikerfi aukist verulega á næstu vikum og mánuðum eftir því sem fleiri verktakar hefja störf á svæðinu.

„Ístak stýrir hliðarsamningum frá kjallara upp á fjórðu hæð og heldur utan um samræmingu allra verkþátta. Verkið er umfangsmikið og nær verkáætlunin yfir fjögur ár. Á árinu verður því áfram mikil starfsemi í húsinu við ílögn, uppsetningu innveggja, málningu og frágang tæknikerfa,“ segir Árni Kristjánsson, staðarverkfræðingur hjá NLSH.

Sérhæfðar áskoranir við uppbyggingu framtíðarsjúkrahússins

Verkefnið felur jafnframt í sér ýmsar tæknilegar áskoranir. Þar ber helst að nefna sérhæfð svæði þar sem þörf er á hönnun og útfærslu í samráði við framleiðendur lækningatækja, auk undirbúnings fyrir sérhæfðan tækjabúnað sem síðar verður tekinn í notkun í starfsemi Nýs Landspítala.

Áætlað er að framkvæmdum við meðferðarkjarnann ljúki í janúar 2028, en verkefnið er eitt umfangsmesta byggingarverkefni sem ráðist hefur verið í á Íslandi á síðari árum.

Heimild: NLSH ohf.

Efni: Innanhússframkvæmdir á meðferðarkjarna Nýs Landspítala á fullri ferð