F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Viðbygging Sundhöll Reykjavíkur – Trésmíði, innihurðir, glerveggir og innréttingar. Útboð nr. 13846.
Um er að ræða fullnaðar smíði og uppsetningu á innihurðum, glerveggjum og innréttingum í nýja viðbyggingu við Sundhöll Reykjavíkur við Barónstíg í Reykjavík.
Helstu magntölur
Bekkir í útiklefum 2 stk
Parket gólf 65 m²
Innihurðir 25 stk
Skápar í búningsklefum inni 80 stk
Skápar í búningsherbergi starfsmanna 22 stk
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á kr. 3.000, frá þriðjudeginum 24. janúar 2017 í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12–14, 1.hæð, 105 Reykjavík.
Opnun tilboða: Kl. 10:00, föstudaginn 10. febrúar 2017, í Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík. Tilboðum skal skilað í þjónustuver Reykjavíkurborgar.