Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir hafnar við nýtt hjúkrunarheimili

Framkvæmdir hafnar við nýtt hjúkrunarheimili

216
0

Framkvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili á Sólvangi eru hafnar. Um er að ræða 60 rýma hjúkrunarheimili á svæði sem opnar á ýmsa möguleika. Starfshópur á bak við uppbygginguna tók í vikunni skóflustunga að nýju heimili og markaði þar með upphaf framkvæmda.

<>

Fyrirtækið Grafa og grjót hf. mun á næstu dögum hefja jarðvinnu á svæðinu sem ráðgert er að ljúki í kringum miðjan mars. Fyrirhugað er að heimilið verði risið og komið í notkun um mitt ár 2018.

Nýtt hjúkrunarheimili mun rísa á Sólvangsreitnum þar sem í dag er eldra hjúkrunarheimili og heilsugæsla fyrir Hafnfirðinga. Um er að ræða 60 rýma hjúkrunarheimili sem gert er ráð fyrir að tilbúið verði til notkunar um mitt ár 2018. Hugmyndir eru uppi um áframhaldandi nýtingu á núverandi húsnæði Sólvangs í þágu eldri borgara í sveitarfélaginu auk þess að reka þar hjúkrunarheimili.

20.01.2017 Sólvangur viðbygging

Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa lagt ríka áherslu á að Sólvangur verði miðstöð fyrir ýmsa þjónustu við eldri borgara. Dagdvöl aldraðra er í dag starfandi á neðstu hæð hússins og er gert ráð fyrir þeirri starfsemi áfram. Auk þess myndi húsið henta vel fyrir félagsstarf eldri borgara, aðsetur heimaþjónustu, dagþjálfun fyrir heilabilaða, sjúkraþjálfun, mötuneyti og fleira. Staðsetning heilsugæslunnar á Sólvangi styður enn frekar við þessar hugmyndir. Einnig hefur verið litið til þess að fjölga fyrirhuguðum rýmum úr sextíu í áttatíu og nýta Sólvangshúsið m.a. fyrir þau tuttugu rými sem fengjust til viðbótar.

20.01.2017 Sólvangur viðbygging inni

Mikil þörf er fyrir fleiri hjúkrunarrými á höfuðborgarsvæðinu og myndi þessi aukning koma til móts við þær þarfir. Mikilvægt er að ákvarðanir ríkis og sveitarfélags um framtíðarnotkun húsnæðisins verði teknar sem fyrst þannig að hægt sé að hefja endurhönnun á húsnæðinu svo framkvæmdir geti hafist um leið og nýja húsnæðið verður tekið í notkun.

Fjölmennur íbúafundur um hönnun og fyrirliggjandi framkvæmdir

Íbúafundur um nýtt hjúkrunarheimili var haldinn á Sólvangi í gærkvöldi þar sem farið var yfir hönnun hjúkrunarheimilis og fyrirliggjandi framkvæmdir. Fjölmenni sótti fundinn og er greinilegur áhugi íbúa á uppbyggingu þessarar mikilvægu þjónustu fyrir eldri borgara. Á fundinum var farið yfir stöðu verkefnsins en hönnun er í höndum fyrirtækisins Úti og Inni Arkitekta.

Farið var yfir teikningar og helstu þætti við hönnun hússins. Hér er um umfangsmikla framkvæmd að ræða og verður áhersla lögð á að gæta sérstaklega að umhverfinu á framkvæmdatíma þannig að sem minnst rask og truflun verði vegna framkvæmdanna. Fulltrúi heilbrigðisráðuneytis fór á fundi yfir samning ráðuneytisins við Hafnarfjarðarbæ og hvernig staðið verður að rekstrarútboði vegna þjónustunnar. Hafnarfjarðarbær mun ekki koma að rekstri hjúkrunarheimilisins heldur mun ríkissjóður ábyrgjast reksturinn og bjóða hann út 12 mánuðum fyrir opnun. Hafnarfjarðarbær fjármagnar framkvæmdina og leigir húsnæðið til ríkisins.

Heimild: Hafnarfjörður