ÍAV hefur framkvæmdir við 16,8 milljarða Þjóðarhöll í Laugardal
Fyrsta skóflustunga að nýrri Þjóðarhöll í Laugardal var tekin í dag, fimmtudaginn 12. nóvember 2026, og eru framkvæmdir við þetta umfangsmikla mannvirki þar með formlega hafnar. Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) annast hönnun og byggingu hallarinnar samkvæmt samningi að fjárhæð 16,825 milljarðar króna með virðisaukaskatti. Höllin verður um 17.700 fermetrar að stærð og er stefnt að verklokum í janúar 2030.
Athöfn vegna fyrstu skóflustungunnar fór fram í Laugardalnum í dag að viðstöddum fulltrúum ríkis, Reykjavíkurborgar, íþróttahreyfingarinnar og þeirra fyrirtækja sem koma að framkvæmdinni.
Athöfnin hófst í Laugardalshöll klukkan 13 og að loknum ávörpum var gengið að byggingarlóðinni þar sem ungt afreksíþróttafólk úr landsliðum og íþróttafélögum í Laugardal tók fyrstu skóflustunguna.

ÍAV annast hönnun og byggingu
Verksamningur um hönnun og byggingu Þjóðarhallarinnar var undirritaður 30. september síðastliðinn við Íslenska aðalverktaka og samstarfsaðila þeirra.
Samningurinn var gerður að loknu forvali og samkeppnisútboði.
Auk ÍAV koma ASK arkitektar, COWI, LPO arkitekter, Ísloft, EOH og Landhönnun að verkefninu.
Samningsfjárhæðin nemur 16.825.502.986 krónum með virðisaukaskatti og er bundin vísitölu byggingarkostnaðar frá janúar 2026.
Framkvæmdin er fjármögnuð af ríkissjóði og Reykjavíkurborg í gegnum Þjóðarhöll ehf., sem er í 55% eigu ríkisins og 45% eigu Reykjavíkurborgar.

Um 17.700 fermetra fjölnota mannvirki
Þjóðarhöllin mun rísa sunnan við núverandi Laugardalshöll og tengjast bæði henni og Frjálsíþróttahöllinni.
Höllin verður um 17.700 fermetrar að stærð og mun rúma 8.600 áhorfendur í sæti á íþróttaviðburðum og allt að 12.000 gesti á öðrum viðburðum.
Mannvirkið verður hannað fyrir fjölbreytta starfsemi, meðal annars landsleiki í innanhússíþróttum, æfingar, kennslu, keppnir og menningarviðburði.
Jafnframt er gert ráð fyrir að nýja höllin bæti verulega aðstöðu íþróttafélaganna Þróttar og Ármanns og grunnskólabarna í Laugardal.

Stefnt að BREEAM-umhverfisvottun
Við hönnun og byggingu Þjóðarhallarinnar verður lögð áhersla á umhverfismál og aðgengi.
Stefnt er að því að mannvirkið hljóti BREEAM-umhverfisvottun með einkunnina „Very Good“.
Jafnframt verður byggingin hönnuð samkvæmt meginreglum algildrar hönnunar.

Verklok fyrir heimsmeistaramótið 2031
Samkvæmt áætlunum á Þjóðarhöllin að verða tilbúin í janúar 2030.
Þar með verður nýja höllin komin í notkun áður en heimsmeistaramót karla í handknattleik fer fram árið 2031, en Ísland verður einn þriggja gestgjafa mótsins ásamt Danmörku og Noregi.
Með fyrstu skóflustungunni er hafinn nýr áfangi í uppbyggingu íþróttamannvirkja í Laugardal, þar sem ríkið og Reykjavíkurborg standa sameiginlega að einni umfangsmestu opinberu byggingarframkvæmd sem nú er að hefjast á höfuðborgarsvæðinu.
Heimild: Reykjavíkurborg
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Þjóðarhöllin á að vera klár í janúar 2030
Efni: ÍAV hefur framkvæmdir við 16,8 milljarða Þjóðarhöll í Laugardal












