Home Fréttir Í fréttum 23.11.2026 Reykjavíkurborg býður út niðurrif 1.139 fermetra skemmu í Gufunesi

23.11.2026 Reykjavíkurborg býður út niðurrif 1.139 fermetra skemmu í Gufunesi

178
0
Reykjavíkurborg býður út niðurrif 1.139 fermetra skemmu í Gufunesi
Mynd: RÚV – Ragnar Visage

Reykjavíkurborg býður út niðurrif 1.139 fermetra skemmu í Gufunesi

Reykjavíkurborg óskar eftir tilboðum í niðurrif 1.139 fermetra skemmu við Gufunesveg 25 sem varð eldi að bráð í janúar síðastliðnum. Um er að ræða steinsteypta byggingu frá árinu 1955 sem áður þjónaði sem birgðageymsla Áburðarverksmiðjunnar. Verkið felur í sér niðurrif allrar byggingarinnar, förgun byggingarúrgangs og frágang lóðar. Tilboðsfrestur er til 23. nóvember.

Útboðið er á vegum umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar og ber númerið 16368, „Gufunesvegur 25 – Niðurrif“.

Skemman er í eigu Reykjavíkurborgar en kvikmyndaframleiðslufélagið Truenorth hafði haft hana á leigu frá febrúar 2024.

Húsnæðið var meðal annars nýtt til geymslu leikmuna þegar eldur kom upp í byggingunni í janúar 2026.

Öll byggingin verður fjarlægð

Skemman er einnar hæðar steinsteypt hús, óeinangrað og með stálgrindarþaki sem klætt var bárujárni. Eftir brunann stendur lítið eftir af ysta byrði þaksins.

Samkvæmt útboðslýsingu Reykjavíkurborgar skal rífa niður og fjarlægja alla bygginguna, þar með talið botnplötu, útveggi, þakvirki og hillukerfi úr stáli.

Einnig skal fjarlægja allt það sem brann inni í húsinu.

Að niðurrifi loknu skal fylla í grunn byggingarinnar og grófjafna yfirborð lóðarinnar.

Sérstakar kröfur um flokkun úrgangs og spilliefna

Í útboðinu er lögð áhersla á rétta meðhöndlun byggingarúrgangs og spilliefna.

Verktaki skal flokka úrgang samkvæmt byggingarreglugerð og reglum viðurkenndra móttökuaðila ásamt því að fylgja fyrirmælum Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.

Ekki er gert ráð fyrir að asbest sé í byggingunni.

Komi hins vegar asbest í ljós við niðurrifið skal stöðva vinnu og tilkynna eftirlitsmanni verkkaupa og Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.

Við slíkar aðstæður verður metið hvort taka þurfi sýni til greiningar og endurskoða umfang og kostnað verksins.

Stefnt að verklokum fyrir áramót

Vettvangsskoðun fyrir áhugasama bjóðendur verður haldin mánudaginn 16. nóvember klukkan 11:00.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en 23. nóvember 2026 klukkan 10:00.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur.

Samkvæmt útboðsauglýsingunni er stefnt að því að niðurrifi og frágangi ljúki eigi síðar en 30. desember 2026.

Ekki kemur fram í auglýsingunni hver kostnaðaráætlun Reykjavíkurborgar er vegna verksins.

Heimild: Reykjavíkurborg

Efni: Reykjavíkurborg býður út niðurrif 1.139 fermetra skemmu í Gufunesi