Home Fréttir Í fréttum Undirrituðu verksamning um jarðvegsframkvæmdir fyrir Stóra-Hraun

Undirrituðu verksamning um jarðvegsframkvæmdir fyrir Stóra-Hraun

357
0
Undirrituðu verksamning um jarðvegsframkvæmdir fyrir Stóra-Hraun
Verksamningur undirritaður. Frá vinstri eru Óskar Jósefsson, forstjóri FSRE, Páll Winkel, ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins og Atli Þór Jóhannsson, framkvæmdastjóri Borgarverks.

Undirrituðu verksamning um jarðvegsframkvæmdir fyrir Stóra-Hraun

Í síðustu viku var undirritaður verksamningur við jarðvinnuverktakann Borgarverk um jarðvegsframkvæmdir fyrir fangelsið að Stóra-Hrauni. Verktakinn stefnir á að koma með vinnuvélar á verkstað strax í næstu viku.

Borgarverk átti lægsta tilboðið í verkið eða tæplega 993 milljónir króna. Sjö tilboð bárust.

Fyrsta öryggisfangelsi landsins

Stóra-Hraun verður öryggisfangelsi með 128 rýmum fyrir afplánun. Það mun bæta aðstöðu til að aðskilja fanga eftir þörfum, efla öryggi og skapa betri skilyrði fyrir menntun, endurhæfingu og meðferð.

Framkvæmdinni verður skipt í tvo áfanga. Í þeim fyrri verður lögð áhersla á almenn fangarými sem rúma 56 fanga, skólabyggingu, eina vinnustofu, vöruhús og aðalbygging. Áætlaður kostnaður við fyrri hlutann er 17,8 milljarðar og eru þær framkvæmdir fjármagnaðar að fullu.

Heimild: Stjórnarráðið

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Bauð nær milljarð í jarðvinnuframkvæmdir við nýtt fangelsi á Stóra-Hrauni

Efni: Undirrituðu verksamning um jarðvegsframkvæmdir fyrir Stóra-Hraun