Home Fréttir Í fréttum Bauð nær milljarð í jarðvinnuframkvæmdir við nýtt fangelsi á Stóra-Hrauni

Bauð nær milljarð í jarðvinnuframkvæmdir við nýtt fangelsi á Stóra-Hrauni

306
0
Bauð nær milljarð í jarðvinnuframkvæmdir við nýtt fangelsi á Stóra-Hrauni
Til stendur að reisa nýtt fangelsi skammt frá Litla Hrauni. RÚV – Ragnar Visage

Bauð nær milljarð í jarðvinnuframkvæmdir við nýtt fangelsi á Stóra-Hrauni

Fyrirhugað er að reisa nýtt fangelsi á Suðurlandi nærri fangelsinu á Litla Hrauni. Sjö fyrirtæki buðu í jarðvinnuframkvæmdir og tilboð Borgarverks upp á tæpan milljarð króna var samþykkt.

Sjö fyrirtæki buðu í jarðvinnuframkvæmdir vegna nýs fangelsis sem á að fara að byggja á jörðinni Stóra-Hrauni skammt frá fangelsinu á Litla-Hrauni á Eyrarbakka í Sveitarfélaginu Árborg. Borgarverk ehf. á Selfossi fékk verkið vegna jarðvinnuframkvæmda og fleiri atriða fyrir tæpan milljarð króna.

Nýja fangelsið verður öryggisfangelsi fyrir 128 fanga. Verkefni Borgarverks felur meðal annars í sér aðstöðusköpun, uppsetningu vinnubúða, vegagerð, lagningu veitna og rafstrengja og jarðvinnu í fyrsta áfanga.

Svona mun nýja fangelsið líta út á Stóra Hrauni í Sveitarfélaginu Árborg.
Selfoss / Aðsend

Samkvæmt upplýsingum frá stjórnarráðinu verður framkvæmd byggingarinnar skipt í tvo áfanga og er áætlaður kostnaður við þann fyrri 17,8 milljarðar. Þar verður lögð áhersla á almenn fangarými sem rúma 56 fanga, skólabyggingu, eina vinnustofu, vöruhús og hliðarbyggingu. Í seinni áfanganum verður öryggisdeild fyrir 16 fanga, fyrirmyndardeild fyrir 56 fanga, önnur vinnustofa, starfsmannahús og bílastæði fyrir starfsmenn.

Borgarverk er með starfsemi sína í Víkurheiði á Selfossi.
Selfoss / Magnús Hlynur Hreiðarsson

Heimild: Ruv.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Borgarverk fær 993 milljóna jarðvinnu við nýtt fangelsi á Stóra-Hrauni

Efni: Bauð nær milljarð í jarðvinnuframkvæmdir við nýtt fangelsi á Stóra-Hrauni