Home Fréttir Í fréttum 114 milljóna skattalagabrot hjá verktakafyrirtæki

114 milljóna skattalagabrot hjá verktakafyrirtæki

219
0
114 milljóna skattalagabrot hjá verktakafyrirtæki
Mynd úr safni. mbl.is/Þorsteinn

114 milljóna skattalagabrot hjá verktakafyrirtæki

Karlmaður á sextugsaldri hefur verið ákærður af embætti héraðssaksóknara fyrir um 114 milljóna skattalagabrot í tengslum við rekstur á verktakafyrirtæki sem hann var framkvæmdastjóri, stjórnarmaður og prókúfuhafi í.

Samkvæmt ákærunni er sagður hafa komið fyrirtækinu undan því að greiða samtals 26,2 milljónir í opinber gjöld á árunum 2019 til 2021. Þá er honum jafnframt gefið að sök að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti upp á samtals 88 milljónir á sama tímabili, en bæði var um að ræða vanframtalin útskatt og offramtalinn innskatt.

Fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota árið 2021, en þá hafði nafni þess verið breytt. Á sama tíma var nýtt félag stofnað sem fékk nafn þess gamla. Er annar eigandi skráður eigandi þess en þess sem varð gjaldþrota.

Málið var þingfest fyrr á þessu ári, en aðalmeðferð þess fer fram í næsta mánuði.

Heimild: Mbl.is

Efni: 114 milljóna skattalagabrot hjá verktakafyrirtæki