
Tveir slösuðust eftir að vinnupallur hrundi
Tveir menn slösuðust eftir að vinnupallur gaf sig í miðbæ Reykjavíkur fyrr í gær.
Að sögn Ásmundar Rúnars Gylfasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, var annar mannanna á pallinum þegar hann hrundi og hinn á jörðu niðri og fékk því pallinn á sig.
Aðspurður kveðst Ásmundur ekki vera með hæð fallsins á hreinu en vísar til þess að mennirnir hafi verið að vinna að tveggja hæða húsi. Því má reikna með nokkurra metra falli.
Þá voru mennirnir fluttir á slysadeild til aðhlynningar með minniháttar áverka.
Heimild: Mbl.is
Efni: Tveir slösuðust eftir að vinnupallur hrundi











